Monday, December 31, 2007

Halla og Atli fengu bæði íbúðir á árinu og fluttu í þær. Halla flutti í Dimmuhvarf í júní og Atli flutti á Kapellustíg í apríl.
Myndirnar eru teknar í nýju íbúðunum.
Labels: Nýjar íbúðir á árinu 2007
Sunday, December 30, 2007

Í haustfríinu skrapp ég til Öddu og kisanna Kollu og Jógúrt. Þær eru núna fluttar í borg sem heitir Zoetermeer og ég þurfti að sjá hvernig fer um þær í nýju íbúðinni.
Labels: Hollandsferð 12. - 15. október 2007



Snorri og Fjóla voru ásamt mér fjórar vikur í Danmörku í sumar hjá Sísí.
Þessi mynd var tekin 17. júní. Við vorum ekki nógu heppin með veður. Reyndar var sól og gott veður fyrstu vikuna en svo var endalaus rigning það sem eftir var, eða þannig upplifðum við veðrið.
Við áttum samt góðar stundir og Fjóla var reglulega ánægð með ferðina.
Labels: Danmerkurferð í júní 2007
