Sunday, July 30, 2006


Í júlí vorum við á Fossi austur í Skaftafellssýslu. Ég var þar lengst ásamt Fjólu, samtals 8 daga. Aðrir fjölskyldumeðlimir komu og fóru. Síðasta daginn vorum við á Hornafirði. Veðrið var hlýtt og gott en ekki mikil sól.
Saturday, July 15, 2006

Við erum ekki bara í ferðalögum í útlöndum. Oft skreppum við í stuttar ferðir um helgar innanlands. Hér eru Ómar og Halla á Þingvöllum í sumar og Snorri við Kleifarvatn.Wednesday, July 12, 2006


Atli var á Hróarskelduhátíðinni eftir að hann fór frá okkur í Danmörku. Hann var ánægður með hátíðina og gekk með armbandið í nokkra daga til að endurupplifa stemminguna. Armbandið er farið núna.
Bóndarósin mín er falleg þessa dagana og fallegri en oft áður. Yfir 30 útsprungnar rósir. Þetta hefur sennilega eitthvað að gera með veðrið.
Tuesday, July 11, 2006
Halla var á Barnaspítala Hringsins í dag. Þar var hún í alls konar rannsóknum, heilasneiðmynd, nýrnasónar, blóðprufu og pissuprufu.Halla var fegin þegar Ómar kom að sækja hana og hún gat farið heim.
Tuesday, July 04, 2006
Við Snorri erum komin heim úr okkar árlegu Danmerkurferð. Nú vorum við næstum heilan mánuð hjá Sísí á Jótlandi.Við byrjuðum ferðina á tveimur dögum í Kaupmannahöfn þar sem við fórum bæði í Dýragarðinn og Tívolí og svo auðvitað á McDonalds. Snorri getur ekki verið án hamborgara. Hann keypti sér fjóra ostborgara,
Atli kom og var þrjá daga með okkur. Sísí keyrði hann í skoðunarferð um nágrennið og þarna erum við hjá Ravning brúnni.