<$BlogRSDUrl$>

Monday, April 17, 2006

Nú erum við komin heim úr Hollandsferðinni. Við vorum aðallega í Amsterdam, Rotterdam, Haag, Delft og Nootdorf.

Hér eru Snorri og Adda í Delft. Þangað fórum við í innkaupferð í uppáhaldsfatabúðina mína. Það kom ausandi rigning á meðan við vorum þarna svo við forðuðum okkur inn á ítalskan veitingastað og pöntuðum pizzur. Mark hitti okkur svo þar og borðaði með okkur.



Adda keyrði okkur í ótal bíltúra til að skoða og gaf okkur hollenska osta og hollenskar kökur að borða.

Veðrið í ferðinni var ekki nógu gott. Það var heldur kalt og allur gróður var óeðlilega seint á ferðinni. Ég sá því fáa túlipana í túlipanaferðinni minni.

Saturday, April 01, 2006



Til hamingju með afmælið Halla !

Halla á afmæli í dag, 1. apríl. Hún er 21 árs. Veðrið hefur verið kuldalegt síðustu daga, en í dag skín sólin og himininn er heiður og blár. Það er samt kalt úti og frost.
Í gær sá ég að fyrstu túlipanarnir í garðinum voru komnir með gula knúbba. Kannski springa þeir út fyrir Höllu í dag.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?