Sunday, December 31, 2006

GLEÐILEGT NÝTT ÁR ! það er komið fram yfir miðnætti og við erum búin að skjóta flugeldum og kveikja á stjörnuljósum og fjölskyldupakkinn er tómur. Hávaðinn úti er þagnaður. Klukkan í tölvunni er vitlaus.
Ómar tók þátt í gamlárshlaupi ÍR. Hann hljóp 10 km á 48 mín og 43 sek og var í sæti 195 af 565 sætum alls.
Um klukkan 21 fórum við Halla í okkar árlega áramótabíltúr og stoppuðum við brennuna á Ægissíðunni og horfðum á fólkið kveikja á blysum. Halla var mjög áhugasöm og talaði um brennu og flugelda þegar hún kom heim.
Saturday, December 23, 2006

Meira um skólamál. Snorri er búinn með haustannarprófin. Hér er mynd af honum frá því í haust. Hann er nýkominn úr Herra Hafnarfirði þar sem við keyptum skólaföt, gallabuxur, bol og peysu.
Snorri verður 18 ára 27. desember.

