

Ég skrapp til Hollands í haustfríinu um síðustu helgi til að heimsækja Öddu. Við tvær fórum saman í smá innkaupa- og skoðunarferðir. Myndin af mér er tekin í Gouda á laugardeginum og myndin af Öddu í Rotterdam á sunnudeginum.
# posted by Imma : 2:35 PM

Um síðustu helgi fórum við að skoða Hraunfossa og til að taka myndir. Það var svo kalt að við Ómar rétt hlupum út með myndavélarnar. Snorri fékkst til að kíkja aðeins á Hraunfossana og labba að Barnafossum en við reyndum ekki að bjóða Höllu og Múlan að fara út úr bílnum.
# posted by Imma : 3:33 PM