
Ómar tók þátt í Reykjavíkur maraþoni 19. ágúst. Hann hljóp 10 km á 49 mínútum og 52 sekúndum og var í sæti 286 af 2171 sætum alls.
# posted by Imma : 11:49 AM

Hér er mynd af flugeldasýningunni á menningarnótt 19. ágúst. Við Halla skruppum tvær saman í bæinn og fengum "stúkusæti" á Skúlagötunni.
# posted by Imma : 11:43 AM

Nú er viðburðaríkt sumar bráðum búið. Í júlí var Sigurrós með tónleika á Klambratúni og þangað fór ég með Snorra og Atla.
Hér eru þeir bræðurnir og tónleikarnir eru byrjaðir. Ég var sennilega hrifnust af okkur þremenningunum.
# posted by Imma : 11:17 AM