Saturday, February 25, 2006

Nú er ég búin að kaupa flugmiða fyrir mig og Snorra til Hollands í páskafríinu. Ég hef ekki verið þar síðan sumarið 2003 þegar ég fór til Amsterdam á Rolling Stones tónleika með Öddu. Reyndar þurfti ég þá að fara tvær ferðar því Jagger var með hálsbólgu og miðinn minn gilti því mánuði seinna á aukatónleika. Það var nú fjör ! Við ætlum að heimsækja Öddu og fara með henni í frægan túlipanagarð. Engir tónleikar í þessari ferð.
Sunday, February 19, 2006

Það er ekki svo langt síðan ég sá Sísí því hún kom í haust og var í mánuð hjá Öddu. Þetta var síðasta tækifærið fyrir hana því Adda var búin að ákveða að selja íbúðina sína og flytja til Hollands. Við Adda buðum Sísí í óvissuferð suður með sjó og síðan sjávarréttasúpu í Rauða húsinu. Þarna fengum við með brauðinu þann besta hummus sem ég hef smakkað.

Föstudagurinn síðastliðinn og mánudagurinn á morgun eru frídagar á vorönn. Ég er heima að þessu sinni, en í fyrra notaði ég fríið til að heimsækja Sísí. Myndin sem fylgir var tekin þá. Núna hugsa ég bara til hennar, en það hefur verið óeðlilega mikill snjór undanfarið hjá henni og kuldi. Tónleikarnir sem við fórum þá saman á með Herði Torfasyni í Vandel krá eru líka ógleymanlegir.