<$BlogRSDUrl$>

Tuesday, December 27, 2005

Til hamingu með afmælið Snorri!

Snorri á afmæli í dag, 27. desember. Hann er 17 ára. Þessi fína peysa er jólagjöf frá Sísí. Kannski var það afmælisgjöf. Það ruglast allir pakkar hjá Snorra, jólagjafir og afmælisgjafir í einum graut því hann getur ekki beðið með að opna afmælispakkana.
Snorri á reyndar þrjá afmælisdaga í mínum huga. Sá fyrsti er 6. des en þá var búið að ákveða að taka hann með keisaraskurði. Snorri snéri sér hins vegar við á síðustu stundu úr þverstöðu og þá var ákveðið að bíða til 24. des sem var áætlaður fæðingardagur. Læknarnir buðu svo þjónustu sína þar sem svo lítið væri að gera hjá þeim þennan dag en ég ákvað að bjarga honum frá þeim ósköpum að eiga afmæli á aðfangadag og samdi við læknana um 27. des. Lengur var ekki hægt að bíða með að íta við honum því læknarnir héldu að barnið væri orðið 2o merkur.

Fyrst ég er byrjuð að segja frá þessum utanlandsferðum er best að hafa allar ferðar ársins upptaldar. Um mánaðarmótin sept / okt fór ég í árshátíðarferð með Ómari til Prag. Það var mjög sérstakt að koma þangað og skoða allar þessar gömlu fallegu byggingar og svo gat ég ekki slitið mig frá öllum kristalnum sem stillt var út í búðargluggana í annarri hverri búð næstum því. Ég myndaði gluggaútstillingarnar bak og fyrir. Með því eftirminnilegasta er heimsóknin í miðbæinn í gamla bænum, Kastalahverfið, Gullnu götuna og svo gangan yfir Karlsbrúna, sem liggur yfir Moldá, bæði á sólbjörtum degi og í ljósadýrðinni að kvöldi. Á myndinni sést Ómar einmitt við enda brúarinnar síðasta kvöldið. Prag er engu lík !

Monday, December 26, 2005

Sísí rekur heimagistingu með fimm herbergjum allt árið. Þrjú herbergjanna eru tveggja manna og tvö fjögurra manna. Hún getur því tekið 14 manns í rúm og svo er alltaf möguleiki á að fá aukadýnu á gólfið eða hafa lítil börn í rúminu með foreldrum sínum. Gestirnir hafa aðgang að eldhúsi og hjálpa sér sjálfir með morgunmat og er úr ýmsu að velja í ísskápnum. Í sameiginlegri borðstofu er er hægt að borða og þar er líka sjónvarp.
Það eru aðeins 10 km í Legoland í Billund og því tilvalið fyrir fjölskyldur með börn að gista hjá Sísí. Þá eru fleiri spennandi staðir eins og Ljónagarðurinn í Givskud þar sem ekið er innan um ljón og önnur villlt dýr skammt frá og stutt er að fara á baðströnd.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?