Sunday, July 17, 2005
Ég er nýlega komin heim frá Danmörku. Þar var ég í 3 vikur ásamt Snorra. Við vorum að heimsækja Sísí systur mína sem rekur heimagistingu á Jótlandi rétt hjá Billund. Þangað koma margar íslenskar fjölskyldur sem ætla að skemmta sér í Legolandi. Slóðin á heimasíðuna hennar er www.zimmer-rooms.dk .Þetta var reyndar önnur ferðin mín á árinu til Danmerkur. Ég var þar líka í febrúar í snjó og kulda sem var tilbreyting frá sumarferðunum hingað til.