<$BlogRSDUrl$>

Sunday, January 06, 2008


Fleira fréttnæmt frá áramótunum: Ómar hljóp 10 km í Gamlárshlaupi ÍR.

Labels:













Í desember var haldið jólaboð í Dimmuhvarfi og þangað mættu Imma, Snorri og Ómar og fengu heitt súkkulaði með rjóma og fleira góðgæti.

Labels:













Þetta eru jólamyndir frá aðfangadagskvöldi. Á þriðja í jólum varð svo Snorri 19 ára.

Labels:


Tuesday, January 01, 2008


GLEÐILEGT NÝTT ÁR !

Þessa mynd tók ég fyrir utan húsið á gamlárskvöld. Ég held að ég muni ekki aðra eins flugeldasýningu og ég sá í gærkvöldi. Um miðnætti var sæmilegt veður en fyrr um kvöldið var spáð svo miklu hvassviðri að ekki var kveikt í neinum brennum.

Labels:


Monday, December 31, 2007


Halla og Atli fengu bæði íbúðir á árinu og fluttu í þær. Halla flutti í Dimmuhvarf í júní og Atli flutti á Kapellustíg í apríl.
Myndirnar eru teknar í nýju íbúðunum.

Labels:


Sunday, December 30, 2007



Í haustfríinu skrapp ég til Öddu og kisanna Kollu og Jógúrt. Þær eru núna fluttar í borg sem heitir Zoetermeer og ég þurfti að sjá hvernig fer um þær í nýju íbúðinni.

Labels:








Snorri og Fjóla voru ásamt mér fjórar vikur í Danmörku í sumar hjá Sísí.

Þessi mynd var tekin 17. júní. Við vorum ekki nógu heppin með veður. Reyndar var sól og gott veður fyrstu vikuna en svo var endalaus rigning það sem eftir var, eða þannig upplifðum við veðrið.

Við áttum samt góðar stundir og Fjóla var reglulega ánægð með ferðina.


Labels:


Tuesday, April 03, 2007


Halla á 22 ára afmælisdaginn sinn. Afmælisgjafir og snakk á borðum og Aladín lætur sig ekki vanta.

Labels:


Monday, January 01, 2007



Hér eru tvær af myndunum sem við Halla tókum við brennuna á Ægissíðunni í gærkvöldi. Ég er alveg hissa hvað litla myndavélin mín getur gert svona í myrkrinu og án þrífótar.

Sunday, December 31, 2006


GLEÐILEGT NÝTT ÁR ! það er komið fram yfir miðnætti og við erum búin að skjóta flugeldum og kveikja á stjörnuljósum og fjölskyldupakkinn er tómur. Hávaðinn úti er þagnaður. Klukkan í tölvunni er vitlaus.

Ómar tók þátt í gamlárshlaupi ÍR. Hann hljóp 10 km á 48 mín og 43 sek og var í sæti 195 af 565 sætum alls.

Um klukkan 21 fórum við Halla í okkar árlega áramótabíltúr og stoppuðum við brennuna á Ægissíðunni og horfðum á fólkið kveikja á blysum. Halla var mjög áhugasöm og talaði um brennu og flugelda þegar hún kom heim.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?